Sálfræðingur: Útburður í Reykjavík eða fóstureyðing, hver er munurinn? - Sjálfstætt líf hefst við getnað
Af hverju hryllir fólki við að nýfætt barn sé borið út í miðri Reykjavík en ekki við 900 fóstureyðingum á ári, spyr sálfræðingur og fjögurra barna móðir.
Þóra Huld Magnúsdóttir er búsett í Danmörku en sendir grein í Morgunblaðið sem hún kallar Útburður barna og fóstureyðingar.
Þar talar hún um harmleik þann í sumar þegar ung kona ól barn sem fannst svo látið í sorpgeymslu við hótel í borginni.
Að bera út nýfætt barn er ólöglegt á Íslandi. Að deyða aðrar manneskjur er ólöglegt á Íslandi. Á Íslandi eru fóstureyðingar hins vegar löglegar. Meira en 900 fóstureyðingar eru framkvæmdar á Íslandi á hverju ári. 900 börnum er „eytt“ löglega, af læknum, á sjúkrahúsum. Fjarlægð úr legi móður sinnar og hent í rusliðÞóra Huld fer yfir þróun fóstureyðinga frá því að þær voru lögleiddar árið 1935 og hvernig heimildir til þeirra hafa sífellt verið rýmkaðar.
Á árunum 1966 til 1970 var að meðaltali 87 fóstrum eytt á hverju ári eða 2% af öllum fóstrum. Í kjölfar rýmkaðra laga árið 1975 fjölgaði hins vegar fóstureyðingum umtalsvert og á árunum 1976 til 1980 var hlutfallið komið upp í 10% eða 472 fóstureyðingar á ári. Sú þróun hélt áfram og á árunum 2006 til 2009 var 922 fóstrum eytt eða 17% af öllum fóstrum. Það eru 18 fóstur á hverri vikuVísindin hafa sannað að líf hefjist við getnað, segir hún, sjálfstætt líf.
Í viku 11 eru öll helstu líffæri mynduð, byrjuð að starfa saman og eiga bara eftir að þroskast og stækka. Á Íslandi eru í gildi lög sem leyfa okkur að deyða þessar litlu mannverur. Við höfum tekið okkur það vald í hendur að ákvarða virði lífs eftir aldri, stærð, þyngd og þroska. Við neitum að virða ófrávíkjanlegan rétt barnsins til lífs, frá getnaði.Samfara því hafi konum verið talin trú um að fóstureyðingar snúist um mikilvæg kvenréttindi eða um „svokallaðan rétt kvenna yfir „líkama sínum“.“
Ákveðið var að þau réttindi þættu dýrmætari en líf lítillar mannveru.Takmarkið sé talið göfugt, tilgangurinn æðri, og þó að fórnarkostnaðurinn þýði mörg glötuð mannslíf, þá sé það ekki vandamál í sjálfu sér. Fóstureyðingar verði að fá að viðgangast, svo að konur verði ekki „þrælar ótímabærrar þungunar“.
Flesta hryllir við því þegar þeir heyra af því að eitt sinn hafi heilu þjóðirnar stundað útburð á börnum. Fólk hryllti við því þegar það las í fréttum um að ung móðir á Íslandi hefði borið út sitt eigið barn. Það er rangt að deyða lítil börn. Samt sem áður er meira en 900 börnum á Íslandi „eytt“ á hverju einasta ári, því að mæður þeirra verða að hafa „val“, val um líf eða dauða afkvæma sinna. Af hverju hryllir fólk ekki við því? Af hverju hryllir fólk ekki við því að slíkt „val“ sé í boði? Að velja dauðann fyrir barnið sitt eða að velja dauðann fyrir barnið sitt. Útburður eða fóstureyðingar. Hver er munurinn?pressan.isGoa hefur alltaf sagt á þessum vef.....Fóstureyðingar eru morð....Löglegt morð. Árlega bara hér á landi eru framinn yfir 900 morð á ári
Vísindi geta leitt í ljós að fósturvísir hefur frá getnaði þau erfðaefni sem hann mun hafa alla ævi og þau erfðaefni eru ekki þau sömu og erfðaefni móðurinnar. Það er vísindaleg staðreynd. Allt annað er smekkur hvers og eins. Á smekkur eins einstaklings að ákveða hvenær annar einstaklingur hefur lífsrétt???
Goa